Close

Ekki með aðgang?Skráðu þig hér ef þú telur þig þurfa aðgang.

lock and key

Skráðu þig inn.

Account Login

Skilmálar

Eftirfarandi skilmálar gilda um Internetþjónustu Hringiðunnar ehf. og reikningshafa:

1. Með undirritun staðfestir reikningshafi að hann hafi lesið skilmálana og fallist á að lúta þeim. Sé væntanlegur reikningshafi ekki lögráða er staðfesting lögráðamanns áskilin. Lögráðamaður kemur fram sem reikningshafi sé notandi yngri en 18 ára.

2. Ef skilmálar þessir eru brotnir getur það valdið tafarlausri lokun tengingar án fyrirvara.

3. Hringiðan mun eftir fremsta megni tryggja trúnað og öryggi viðskiptavina og þeirra gagna sem þeir kunna að geyma hjá Hringiðunni.

4. Endurgjald fyrir þjónustu Hringiðunnar ehf. reiknast frá samningsgerð og greiðist fyrirfram mánaðarlega. Áskriftargjald reiknast samkvæmt gildandi gjaldskrá Hringiðunnar á hverjum tíma. Gjalddagi er 1. hvers mánaðar.

5. Segja skal upp áskrift með sannanlegum skriflegum hætti t.d. með því að senda tölvupóst á uppsogn@vortex.is. Uppsögn getur einungis tekið gildi um mánaðamót og þarf þá að hafa borist fyrir 25 dag mánaðar til að taka gildi um næstu mánaðarmót. Uppsögn sem berst eftir 25 dag mánaðar tekur þ.a.l. ekki gildi fyrr en um þar næstu mánaðamót. Uppsögn tekur gildi þegar starfsmaður Hringiðunnar hefur staðfest móttöku hennar skriflega.

6. Eftir að samningur hefur verið undirritaður ábyrgist Hringiðan ehf. eftirfarandi:

a) Að stofna reikning, notandanafn og tölvupóstfang fyrir viðskiptamann.
b) Að afhenda grunn búnað til að tengjast Internetþjónustu Hringiðunnar.
c) Að vista gögn sem reikningshafa kunna að vera send með tölvupósti, að því magni sem tilgreint er í t.d. vegna stærða tölvupóstfanga notenda. og heimasíðu reikningshafa ef óskað er.

7. Hringiðan ehf. ábyrgist ekki:
a) Tjón vegna tengiörðugleika, nauðsynlegra viðgerða og endurbóta á búnaði Hringiðunnar eða óviðráðanlegra ytri aðstæðna.
b) Tjón vegna uppsetningar eða notkunar á hugbúnaði sem Hringiðan ehf. kann að hafa bent reikningshafa á að nota.
c) Hringiðan ehf. getur aldrei orðið ábyrg vegna hvers kyns tjóns sem notandi kann
að verða fyrir við notkun Internetsins.

8. Eftir að samningur hefur komist á ábyrgist reikningshafi að fylgja notkunarskilmálum svo og eftirfarandi notkunarreglum:
a) Ávallt skal tengjast neti Hringiðunnar ehf. og netum sem tengjast því undir réttu auðkenni.
b) Óheimilt er að birta efni á neti Hringiðunnar ehf. öðruvísi en undir eigin nafni.
c) Óheimilt er að lána, samnýta eða gefa þriðja aðila upp lykilorð sitt. Umframnotkun sem það
kann að leiða af sér er á ábyrgð notanda.
d) Óheimilt er að nota aðganginn til að dreifa tölvuveirum eða öðru sem kann að valda skaða hjáviðtakanda
e) Óheimilt er að villa á sér heimildir í samskiptum til dæmis þegar sendur er tölvupóstur eða á annan hátt.
f) Óheimilt er að birta efni á heimasíðum sem ekki er í samræmi við lög og reglur eða almennt velsæmi. Þar með talið er efni sem er ærumeiðandi.
g) Óheimilt er að nota tenginguna til að dreifa efni þannig að það brjóti í bága við lög og reglur. Til dæmis lög um eignarrétt, höfundarrétt eða almennt velsæmi.
h) Óheimilt er að trufla aðgang annarra að netinu s.s. með óhóflegri umferð eða beinum skemmdarverkum.
i) Viðskiptavinum er óheimilt að að setja upp hugbúnað eða starfrækja þjónustu á tölvum eða einkanetum sem getur truflað kerfisrekstur og eða þjónustu við aðra viðskiptavini.
j) Hvers kyns óumbeðin fjöldadreifing á upplýsingum s.s. auglýsingum, áróðri eða keðjubréfum er óheimil.
k) Fylgja skal þeim reglum sem gilda á hverri ráðstefnu (Newsnet/Usenet).
l) Fylgja skal þeim reglum sem gilda á spjallrásum (IRC). Notkun spjallrása er þó á eigin ábyrgð.
m) Brot gegn liðum a) m) kann að valda viðkomandi bóta- og/eða refsiábyrgð að lögum.
n) Hringiðan áskilur sér rétt til að ákvarða hvort tiltekin samskipti teljast brjóta í bága við þessar reglur.

9. Hringiðan áskilur sér rétt til að senda viðskiptavinum póst, bréf, sms og tölvupóst með tilkynningum er varða þjónustuna.

10. Hringiðan áskilur sér rétt til að að eyða gögnum viðskiptavinar ef reikningar hafa ekki verið greiddir samfellt í 4 mánuði.

11. Hvers kyns ósiðleg eða ólögleg notkun á neti Hringiðunnar er með öllu óheimil.

12. Skráður rétthafi telst ábyrgur fyrir að skilmálum Hringiðunnar sé fylgt. Reikningshafi ber alfarið ábyrgð á notkun auðkennis síns sem og öllum samskiptum og/eða gögnum sem frá því stafa þ.m.t. vefsíður, tölvupóstur, netfréttagögnum og skrárflutningsgögnum.

13. Þá er reikningshafi sjálfráður um hvert hann leitar upplýsinga eða gagna á neti Hringiðunnar og netum sem því tengjast. Hringiðan ehf. ábyrgist ekki innihald vefsíðna, tölvupóstsendinga eða ráðstefnugagna sem stafar frá einstökum notendum nets Hringiðunnar eða netum sem því tengjast.

14. Hringiðan ehf. mun ef óskað er kynna reikningshafa tæknilega möguleika hans á að útiloka aðgang sinn að einstökum efnisflokkum, t.d. efni sem hann telur óæskilegt að börn hafi aðgang að.

15. Hafi Hringiðan ehf. afhent reikningshafa tengibúnað við undirritun samnings telst búnaðurinn eign Hringiðunnar ehf. þar til áskriftargjöld á samningstíma eru að fullu greidd.

16. Telji starfsmenn Hringiðunnar ehf. að reikningshafi fylgi ekki notkunarreglum er Hringiðunni ehf. heimilt að takmarka eða loka algerlega fyrir aðgang reikningshafa að þjónustu sinni án nokkurs fyrirvara.

17. Sé ekki innistæða fyrir skuldfærslu áskriftargjalds má reikningshafi búast við að lokað verði fyrir þjónustu við hann og viðskiptaskuld viðkomandi reikningshafa send í innheimtu.

18. Skilmálar þessir kunna að verða endurskoðaðir án fyrirvara gerist þess þörf vegna breytinga á Þjónustunni eða fjárskipta starfsemi þeirri sem Hringðan semur notendum.